Rabbabaraskúffukaka


Botn:
150 gr hveiti
100 gr. sykur
1 tsk lyftiduft
2 egg
2 tsk vanilludropar
60 gr. smjör, mjúkt



Rabbabarafylling:
500 gr. rabbabari, skorinn í bita.
1 dl sykur
2 tsk kartöflumjöl
1/2 tsk engifer eða 2 tsk vanillusykur.
Setjið allt í skál og blandið saman. ( Ekki hitað eða neitt svoleiðis vesen) :-)
Dreifið yfir deigið í forminu.

Haframjölsblanda:
80 gr. haframjöl
110 gr. hveiti
80 gr. púðusykur
80 gr. pekanhnetur saxaðar.
1 tsk kanill
100 gr. smjör brætt.



Hitið ofninn í 180 °C. Setjið allt í matvinnsluvél eða hrærivél og blandið vel saman. Jafnið deigið í smurða ofnskúffu, ca. 35X25 cm. Þetta er þunnt lag.


Haframjölsblanda:
Setjð allt saman í hrærivélaskál og hrærið. Stráið svo yfir formið.

Bakið við 180 °C í ca. 35-40 mín. Má frysta

Mjög gott volgt eða kalt með ís eða rjóma:-)


Uppskrift sett inn: 19. Aug 2011

Prentútgáfa