NAAN brauð
Deigið:
200 ml mjólk
2 msk sykur
1 poki þurrger ( 11 gr).
600 gr. Hveiti
1 tsk salt
2 tsk lyftiduft
4 msk ólífuolía
1 dós hrein jógúrt ( 180 g)
Ofaná brauðið:
1 msk maldon salt
1 msk indversk kryddblanda t.d garam masala eða eitthvað annað gott krydd sem ykkur dettur í hug.
25 gr. Smjör
1-2 hvítlauksrif
Búnt af freskum kóríander
( Stundum hef ég bara sett kryddið og saltið og sett svo smá hvítlauksolíu yfir. Hef sjaldan átt kóríander til þess að setja yfir og það er bara í góðu lagi).

Aðferð:
Setjið ger og sykur saman í skál og hellið volgri mjólk yfir. Látið standa í 15 mínútur. Blandið síðan hveiti, salti, lyftidufti, olíu og jógúrti saman við germjólkina. Hnoðið deigið þar til það verður mjúkt og bætið við hveiti ef ykkur finnst það of blautt.
Látið deigið hefast í skál í 1 klst við stofuhita. Hitið ofninn í 275°C.
Blandið kryddinu og saltinu saman á disk.
Skiptið deiginu í 10 -16 hluta og búið til kúlur. Fletið þær síðan út á nokkuð þunnt og þrýstið þeim ofan í kryddblönduna. Raðið brauðunum á plötu klædda bökunarpappír og bakið í 5-7 mín.
Það má líka baka brauðin á efri grind á gasgrilli.
Bræðið smjör í potti, setjið hvítlaukinn saman við smjörið og dreypið því strax yfir heit brauðin. Klippið kóríander síðan yfir allt saman.

Uppskrift sett inn: 15. Aug 2011

Prentútgáfa