|
Hrökkbrauð
1 dl Sólblómafræ 1 dl graskersfræ 1 dl hörfræ 1 dl sesamfræ 1 dl gróft haframjöl 3 1/2 dl spelt 1 1/4 dl olía 2 dl vatn 2 tsk salt Öllu blandað saman í skál hrært þar til deigið er orðið vel blandað ( linur massi) Setjið bökunarpappír á bökunarplötu og helminginn af deiginu á pappírinn, síðan er bökunarpappír settur yfir deigið og flatt út með kökukefli eða höndum mjög auðvelt að eiga við það. Gerið það sama við hinn helminginn af deiginu. Skerið deigið í þá stærð sem þið viljið áður en bakað er. Strá má smá Maldon salti eða parmesan yfir ef þið viljið hafa fjölbreytni. Bakist í 15-20 mín við 200 gr eða þar til hrökkbrauðið er stökkt. Geymið hrökkbrauðið í loftþéttu boxi svo það verði ekki seigt. Uppskrift sett inn: 8. Apr 2010 |