|
Heimagert súkkulaði
Uppskrift:1 dl agavesýróp* 2 dl hreint kakóduft* 2 dl kaldpressuð og lífræn kókosolía* Látið heitt vatn renna í skál og setjið kókosolíuna þar í svo hún verði fljótandi (hún helst fljótandi yfir 24°C) blandið allri uppskriftinni í skál og hrærið saman. Tilbúið. Þetta má setja í konfektform og inn í frysti eða kæli til að búa til súkkulaðimola, einnig má nota þetta sem súkkulaðisósu, hjúpsúkkulaði til að dýfa konfektkúlum í eða blanda þessu útí konfektkúludeig til að gera súkkulaði effect og fleira og fleira. Uppskrift sett inn: 31. Mar 2010 |