|
Kjúklingur með parmaskinku og balsamsósu
Fyrir 4 4 kjúklingabringur 1 tsk salt 1 krm svartur pipar 2 tsk oregano 4 stórar eða 8 litlar sneiðar af parmaskinku 2 dl rjómi 2 msk balsamedik 1 msk kjúklingakraft 2 hvítlauksrif, pressuð Hitið ofninn í 225°. Kryddið kjúklinginn með salti, pipar og oregano. Brúnið bringurnar í smjöri á pönnu. Vefjið parmaskinkunni utan um bringurnar og leggið í eldfast form. Hrærið saman rjóma, hvítlauk, kjúklingakraftinum og basamediki. Hellið í formið yfir kjúklinginn. Steikist í ofni í ca. 15 mín. Uppskrift sett inn: 15. Apr 2009 |