|
Japanskur kjúklingaréttur með stökkum núðlum
6-8 kjúklingabringur olía til steikingar sweet hot chili-sósa, eftir smekk 1 bolli ólífuolía 1/2 bolli balsamedik 4 msk sykur 4 msk sojasósa 2 pokar súpunúðlur (instant súpunúðlur) 200 gr möndluflögur 2-4 msk sesamfræ blandað salat, t.d. klettasalat, eikarlauf og lambasalat. 2 öskjur kirsuberjatómatar, skornir í tvennt 2 mangó, skorin í bita 1 rauðlaukur, skorin í sneiðar Skerið kjúklingabringurnar í strimla og snöggsteikið í olíu á pönnu. Hellið sweet hot chili sósu yfir og látið malla í smástund. Setjið ólífuolíu, balsamedik, sykur og sojasósu í pott og látið suðuna koma upp. Hrærið af og til í sósunni á meðan hún er að kólna svo hún skilji sig ekki. Brjótið súpunúðlur í litla bita og ristið á þurri pönnu svo þær verði stökkar. Setjið til hliðar á disk og látið kólna. Ristið möndluflögur og sesamfræ sitt í hvoru lagi, setjið til hliðar á sama disk og súpunúðlurnar og látið kólna. Setjið salat í stóra skál eða fat og blandið kirsuberjatómötum, mangóbitum og rauðlauk saman við. Dreifið ristuðu núðlunum, möndluflögunum og sesamfræjunum yfir, dreypið sósunni yfir og setjið loks heita kjúklingastrimlana ofan á. Þessi réttur geymist vel og er líka góður kaldur. hann hentar vel einn og sér sem klúbbaréttur eða sem málsverður. Þá er hægt að minnka eða stækka hlutföllin eftir því sem við á. Uppskrift sett inn: 15. Apr 2009 |