Skinkuhorn
500 gr hveiti
100 gr smjörlíki
3 dl vatn
2 tsk. flórsykur
50 gr. ger (pressuger)( eitt bréf)
1 tsk. salt

Fylling
250 gr beikonsmurostur
125 gr blaðlauksmurostur
100-200 gr skinka

Bræða smjörlíkið setja vatnið útí (hafa ilvolgt) láta þurefnin útí og hnoða, láta síðan hefast í ca 1/2 tíma til 3 korter(breiða stykki yfir skálina)
flatt út með kökukefli og diskur settur ofaná og skorið út hringur. Hringurinn síðan skorinn í 8 stykki
fylling sett í og rúllað upp.
Baka við 200 C í korter eða tuttugu mínútur.
Uppskrift sett inn: 28. Jan 2004

Prentútgáfa