Haustsúpa (gúllas-)
1 ½ kg nautagúllas – steikt á pönnu
8 meðalstórar kartöflur
6 gulrætur
2-3 laukar
Rauð og græn papríka
1 msk kúmen
2-3 msk Eftirlæti hafmeyjunnar (pottagaldur)
2 greinar ferskt rósmarín (sett yfir súpuna í lokin)
Pipar og salt
2 ds niðursoðnir tómatar
2 ds tómatpurra m/hvítlauk
200 gr hvítlauks rjómaostur
1 ½ l soð (3-4 teningar (nauta-) + vatn)
1 l vatn (gott að skola pönnuna)

Kjötið steikt á pönnu og sett í eldfast form/leirpott/steikarpott með loki. Gott að setja 1 l af vatni á pönnuna eftir að kjötið er farið af henni (til að nýta kraftinn) og hella því svo í pottinn.
Niðurskorið grænmeti og krydd sett yfir kjötið.
Búinn til lögur úr tómatpúrru o.fl. og hellt yfir það sem er komið í pottinn. Hræra öllu vel saman.
Baka í 2-3 klst (má vera lengur) við 170°. Allt í lagi að útbúa og elda daginn áður en á að nota og hita síðan upp áður en súpan er borin fram. Gott brauð með skemmir ekki!!

Uppskrift sett inn: 27. Sep 2008

Prentútgáfa