Hamborgara- eða pulsubrauð
235 ml mjólk
120 ml vatn
55 g smjör
560 g hveiti (ca. 9 dl)
þurrger
2 msk sykur
2 tsk salt
1 egg
(sesamfræ)
1. Hitið mjólkina, vatnið og smjörið í potti upp í ca. 50°C.
2. Blandið saman salti, sykri, geri og ca. bolla af hveitinu, bætið svo mjólkurlausninni út í og hrærið, bætið út í eggi og svo restinu af hveitinu smátt og smátt og hræra vel á milli. Hnoðið.
3. Skiptið í 12 hluta. mótið í kúlur (eða lengjur fyrir pulsubrauð), fletjið örlítið og látið hefast.
4. Bakið við 200°C í 10-12 mín.
Hamborgarabrauð má pensla með með mjólk og strá sesamfræjum yfir.

Uppskrift sett inn: 18. Jun 2008

Prentútgáfa