Pítubrauð
50gr ger
2 1/2 dl vatn
1 tsk salt
2 msk olía
ca. 450 gr hveiti (ca 7 1/2 dl)
Leysið gerið upp í volgu vatni.
Bætið út í salti, olíu og hveitinu smám saman þar til deigið er orðið passlegt.
Hnoðið vel , skiptið í 16-18 hluta og formið í bollur.
Látið hefast í 20-30 mín.
Fletjið létt með kömukefli.
Bakið við 275°C í 5-6 mín. Eiga að bólna upp í miðjunni, eiga ekki að taka lit í ofninum.
Uppskrift sett inn: 18. Jun 2008

Prentútgáfa