Snickers/banana draumur
Hráefni:
150 gr Haustkex
75 gr smjör
- bræða smjörið og mylja kexið smátt. Blanda svo saman og þrýsta í botninn á formi eða skál, og líka smá upp með hliðum.
1 peli rjómi
6 Snickers (venjulega stærðin)
250 gr Mascarpone-ostur
2 bananar
ofaná:
Salthnetur
1 banani



Aðferð: Bræða snickersin í rjómanum við vægan hita, passa að hræra stöðugt.
Þegar því er lokin skal taka pottinn af hitanum og setja Mascarpone-ostinn
út í og hræra í þar til hann er alveg bráðinn. Raðið einföldu lagi af
bananasneiðum ofan á botninn og hellið svo ostablöndunni yfir. Kælið í
ísskáp í góða stund.
Skreytið kökuna með salthnetum og banana

Uppskrift sett inn: 20. May 2008

Prentútgáfa