Skúffukaka
250 gr (4,16 dl) hveiti
150 gr (1,75 dl) sykur
150 gr (2,50 dl) púðursykur
4-4/12 msk.kakó
1 tsk. matarsóti (natron)
1 tsk. lyftiduft
1/2 tsk. salt
2 egg
2/3 bolli mjólk
1/2 bolli súrmjólk
125 gr brætt smjörlíki
1 tsk. vanilludropar

Krem
150 gr mjúkt smjör eða smjörlíki
1 bolli flórsykur
1/3 bolli kakó
2 msk. síróp
1 tsk. vanilludropar
nokkrar matskeiðar mjólk (fer eftir því hve þykkt kremið á að vera.
Hitið ofninn í 175-180 C
Smyrjið bökunarformið.
Blandið þurrefnunum saman í skál.
Hrærið eggjum,mjólk, súrmjólk,smjörlíki og vanilludropum saman í annari skál þar til allt hefur blandast vel saman. Blandið nú innihaldi beggja SKÁLANNA SAMAN og hrærið þar til allt hefur samlagast. Bakist í ca.20 mínútur.

Krem
Hrærið smjörið þar til það er orðið kremkennt ,sigtið flórsykur og kakó útí blandið mjólkinni samanvið og síðast vanilludropum og sírópi.

Gangi þér vel kveðja mamma
Uppskrift sett inn: 28. Jan 2004

Prentútgáfa