|
Rabarbarabaka Alberts
Vín rabarbari eða grænn(magn fer eftir formi) 200gr.smjör 1bolli hveiti 1bolli sykur 2egg 1msk.kókosmjöl 1tsk.lyftiduft 1tsk.vanillusykur svo má setja örlítið af engiferi ef vill Rabarbarinn er skorinn niður þannig að hann fylli rúmlega botninn á eldföstu móti. Smjörið er brætt og öllum þurrefnum bætt út í það. Hrært saman. Potturinn er svo tekinn af eldavélarplötunni og eggjunum blandað út í. Þegar búið er að hræra þessu öllu saman er það sett yfir rabarbarann í mótinu og bakað við 180gráður í 20 til 30 mínútur. Borið fram með þeyttum rjóma eða bara því sem fólki dettur í hug. Uppskrift sett inn: 24. Jun 2007 |