Berlínarbollur
300 g hveiti
1 tsk sykur
1 hnífsoddur salt
1 dl mjólk
80 g smjörlíki
2 egg
40 pressuger

Hveitið er sáldrað með sykri og salti. Gerið er hrært út með mjólkinni og vætt í með því ásamt egginu. Hnoðað, unz deigið er sprungulaust. Flatt út og tekið undan litlu glasi. Kökurnar eru smurðar vel á röðunum með eggi og ein tsk af berjamauki sett á miðju hverrar köku og annari köku hvolft yfir, röðunum þrýst vel saman. Steiktar í vel heitri tólg, þar til þær eru gulbrúnar. Teknar upp með fiskispaða og látnar á pappír, sem sýgur fituna í sig. Velt upp úr sykri, ef vill.

Matur og drykkur, Helga Sigurðardóttir, Reykjavík 1991
Uppskrift sett inn: 2. Jul 2005

Prentútgáfa