|
Hrísgrjónaréttur
Salatið: 2 bollar soðin hrísgrjón 400 gr rækjur 1 græn paprika 1 rauð paprika 150 gr majónes 150 gr sýrður rjómi 1 msk provencale krydd frá KNORR 2-4 msk karrí hvítlauksduft, eftir smekk Sjóðið og kælið hrísgrjónin. Hrærið saan majónes, sýrðan rjóma og krydd. Saxið paparikurnar í litla bita og blandið saman við hrísgrjónin og rækjurnar. Hellið sósunni yfir og hrærið vel saman. Berið fram kalt með sinnepssósu og ristuðu brauði. Sinnepssósa: 4 msk sætt sinnep 3 msk hunang 150 g majones, eða 100 g sýrður rjómi og 50 g majones soja sósa eftir smekk. Hræra allt vel saman, berið fram með hrísgrjónaréttinum. Uppskrift sett inn: 3. Jul 2004 |