|
Hátíðarfiskur
Hátíðarfiskur Fiskréttir Frábær fiskréttur með muldum kartöfluflögum Efni: 800 gr Skötuselur eða Þorskur 2 saxaðar Paprikkur 1 sneiddur Blaðlaukur 2 saxaðir Sellerístönglar 150 gr. Búri (rifinn) 2 dl. muldar Kartöfluflögur m/paprikku 21/2 dl. Rjómi 4 msk. Hveiti 1 dl. Ananassafi eða Hvítvín 4 msk. Smjör 2 msk. olífuolía 1-2 tsk Tómatkraftur 1/4 tsk turmeric 1/4 tsk karrý 1 tsk Italian seasoning 1/2 tsk þriðja kryddið (má sleppa) 1 tsk. salt 1/2 tsk. svartur pipar 1-2 fiskitenignar Meðhöndlun Látið grænæmetið krauma í 2 msk. af smjöru þar til það verður meyrt. Bætið í msk. af hveiti út í ásamt ananassafa, rjóma. tómatkrafti og örlitlu af vatni ef sósan er of þykk. Kryddið með turmeric, karrýi, þriðja kryddinu, Italian seasoning og fiskteningunum. Látið krauma við vægan hita í nokkrar mín. og hrærið í af og til. Skerið Skötuselinn / þorskinn í u.þ.b. 4 cm þykkar sneiðar. Blandið saman 3 msk. af hveiti, 1 tsk af salti og 1/2 tsk af pipar. Hitið pönnuna og setjið 2 msk. af smjöri og 2 msk. af olíu. Veltið fiskinum upp úr hveitinu og steikið fiskin í 2-3 mín. á hvotti hlið. Hellið grænmetissósunni í smurt, eldfast fat og raðið fiskbitunum þar ofan á. Blandið saman rifna ostinum(Búra) og muldum kartöfluflögunum og stráið yfir fiskin. Bregðið undir glóð í nokkrar mín. eða þar til osturinn er bráðinn. Gott með salati og snittu- eða hvítlauksbrauði. Verði ykkur að góðu kæru Sinawikkkonur Sendandi: Guðríður Halldórsdóttir Uppskrift sett inn: 24. Sep 2025 |