|
Eplaýsa
400g ýsa 4-5 sneiðar beikon 1/2 laukur 1-2 epli (eftir stærð) 1 tsk. Dijon sinnep 2 msk sítrónusafi Ólífuolía og smjör til steikingar Krydd: timían, rósmarín, dill, fennill, kanill, sítrónupipar, sveppakraftur, salt og pipar. Uppskrift fyrir tvo. Steikið beikon á pönnu þar til það er stökk. Takið beikonið af pönnunni og setjið til hliðar. Saxið laukinn fínt, notið fituna sem eftir er á pönnunni til að steikja laukinn þar til hann verður mjúkur. Saxið epli í teninga og bætið út í, steikið áfram í nokkrar mínútur. Hrærið út í Dijon sinnepi, sítrónusafa og kryddið. Saxið niður beikonið og bætið út í pönnuna. Bæta smá smjöri út í pönnuna og látið malla. Þerrið ýsuna, skerið í stóra bita og steikið á annarri pönnu upp úr olíu og smjöri, nokkrar mínútur á hverri hlið þar til hún er elduð í gegn. Kryddið með salt og pipar. Berið ýsubitana fram ofan á eplajukkinu, með hrísgrjónum eða kartöflum. Bætið smá dilli og sítrónusafa yfir réttinn áður en hann er borinn fram. Uppskrift sett inn: 16. Jul 2025 |