Hunangskjúklingur með hvítlauk
4 tsk. smjör
1/4 bolli hunang
2-3 geirar hvítlaukur
1 lime
2 tsk. ólífuolía
400 gr. Kjúklingur
Kasjúhnetur
Furuhnetur
Salt
Pipar
(uppskrift ca. fyrir 2)
Sósa:
Bræðið smjör á pönnu og hellið helming af því í skál, blandið saman við hunang, fínsaxaðan hvítlauk og safa úr lime.

Skerið kjúklinginn smátt. Steikið á pönnu með hnetunum upp úr restinni af smjörinu og ólífuolíu. Steikið þar til kjúklingurinn fer að brúnast og hneturnar verða ristaðar. Kryddið með salt og pipar. Hellið sósunni út á og hitið þar til hún karmelast mátulega.

Borið fram með hrísgrjónum.
Uppskrift sett inn: 16. Oct 2024

Prentútgáfa