Laxaréttur lagsmannsins
- Lax
- Beikon
- Gulrætur
- Laukur
- Pera
- Pekanhnetur
- Döðlur
- Smjör
- Ólífuolía
- Hunang
- Dijon sinnep

Krydd (raðað eftir magni):

- Kúmenfræ
- Garam masala
- Karrí
- Pipar
- Túrmerík
- Salt
- Sítrónupipar
- Hvítlauksduft
- Papríkukrydd
- Dill
Gulrætur skornar smátt og laukur skorinn gróft, steikt á pönnu upp úr smjöri og olíu, með beikoni.
Lax settur í eldfast mót. Meðfram er stráð söxuðum döðlum, brotnum pekanhnetum, saxaðri peru og brytjuðu beikoninu.
Gulrætur og laukur hellt í kring.
Kryddað. Pipar, salt, sítrónupipar, hvítlauksduft og dill yfir allt. Kúmenfræ, garam masala, karrí, túrmerík, papríkukrydd yfir laxinn.
Hunangi dreypt yfir laxinn. Smjörklessum raðað á laxinn með dropum af dijon sinnepi yfir.
Bakað í ofni 20 mínútur á 200°C á blástri.
Gott með bökuðu blómkáli og hrísgrjónum.
Uppskrift sett inn: 26. Mar 2024

Prentútgáfa