Kleinur
urn­ar henn­ar ömmu

500 g hveiti
125 g syk­ur
50 g smjör­líki
1 egg
5 tsk. lyfti­duft, slétt­full­ar
1 tsk. hjart­ar­salt
¼ l mjólk
vanillu- og kar­dimommu­drop­ar (ca. 1 tsk. af hvoru)
Aðferð:

Blandið sam­an þur­refn­un­um og myljið smjör­líkið út í.
Bætið út í mjólk og eggi.
Gerið þetta í hönd­un­um í góðri skál.
Hnoðið (samt ekki of mikið) og fletjið út í um það bil 4-5 mm þykka köku.
Síðan eru bún­ar til klein­ur, upp­ásnún­ar og það er gert svona:
Útflatta deigið er skorið í ræm­ur, síðan í búta á ská og svo skorið gat í miðjuna á hverj­um bút. Við vilj­um ekki hafa bút­ana stóra. Það er svo klunna­legt. Öðru horn­inu er svo stungið í gegn­um gatið og togað var­lega í þannig að það snú­ist upp á klein­una.
Steikið síðan klein­urn­ar í snarp­heitri jurta­feiti, bara nokkr­ar í einu svo það verði ekki of þröngt um þær í pott­in­um.
At­hugið! Feit­in er mátu­lega heit þegar klein­urn­ar skjót­ast upp á yf­ir­borðið strax eft­ir að þær detta ofan í pott­inn.
Hafið þær þarna í 2-3 mín­út­ur, ekki leng­ur, það er gott að snúa þeim einu sinni.
Síðan eru þær tekn­ar upp með gata­spaða.
Þeim finnst gott að láta renna af sér á papp­ír.
Njótið þeirra þegar þær eru ný­steikt­ar með þeim sem ykk­ur þykir best­ur.

Uppskrift sett inn: 24. Nov 2023

Prentútgáfa