|
Kleinur
urnar hennar ömmu 500 g hveiti 125 g sykur 50 g smjörlíki 1 egg 5 tsk. lyftiduft, sléttfullar 1 tsk. hjartarsalt ¼ l mjólk vanillu- og kardimommudropar (ca. 1 tsk. af hvoru) Aðferð: Blandið saman þurrefnunum og myljið smjörlíkið út í. Bætið út í mjólk og eggi. Gerið þetta í höndunum í góðri skál. Hnoðið (samt ekki of mikið) og fletjið út í um það bil 4-5 mm þykka köku. Síðan eru búnar til kleinur, uppásnúnar og það er gert svona: Útflatta deigið er skorið í ræmur, síðan í búta á ská og svo skorið gat í miðjuna á hverjum bút. Við viljum ekki hafa bútana stóra. Það er svo klunnalegt. Öðru horninu er svo stungið í gegnum gatið og togað varlega í þannig að það snúist upp á kleinuna. Steikið síðan kleinurnar í snarpheitri jurtafeiti, bara nokkrar í einu svo það verði ekki of þröngt um þær í pottinum. Athugið! Feitin er mátulega heit þegar kleinurnar skjótast upp á yfirborðið strax eftir að þær detta ofan í pottinn. Hafið þær þarna í 2-3 mínútur, ekki lengur, það er gott að snúa þeim einu sinni. Síðan eru þær teknar upp með gataspaða. Þeim finnst gott að láta renna af sér á pappír. Njótið þeirra þegar þær eru nýsteiktar með þeim sem ykkur þykir bestur. Uppskrift sett inn: 26. Sep 2023 |