Fennil-Chili kjúklingur
6-8 sveppir
1/2 rauð papríka
smjör
500g kjúklingaleggir (úrbeinaðir)
4-5 sneiðar beikon
lófafylli af kasjúhnetum
furuhnetur
1 dós sýrður rjómi (18%)
ca. 1/2 rjómapeli
Villisveppa- eða piparostur
Krydd: Fennil, chili, salt, pipar, papríka, karrí, túrmerik

(matur fyrir ca. 3)
Byrjið á að saxa niður papríku, sveppi og osti í litla bita.
Skerið kjúkling og beikon niður í litla bita og steikið upp úr smjöri á stórri pönnu. Bætið kasjú- og furuhnetum út í og svo seinna papríku, sveppum og osti. Hrærið í, bætið svo við rjóma og sýrðum rjóma og látið malla þar til sósan er mátulega þykk. Kryddið með slatta af fennil og hóflega af chili. Salt, pipar, papríka, karrí, túrmerik eftir smekk.
Uppskrift sett inn: 31. Oct 2020

Prentútgáfa