Kjúklingur með sesamfræjum
Kjúklingalundir
Sojasósa
Sesamfræ
2 msk hveiti
Svartur pipar
Smjör
Blandið saman sesamfræjum, hveiti og svörtum pipar. Veltið kjúklingalundunum upp úr sojasósu og síðan upp úr sesamfræblöndunni. Raðið í eldfast form. Hellið bráðnu smjöri yfir eða setjið klípur. Bakið í ofni við 220° í ca. 20 mínútur.
Gott að strá kasjúhnetum og/eða furuhnetum yfir.
Uppskrift sett inn: 28. Sep 2018

Prentútgáfa