|
Granóla
90 g haframjöl 30 g kókósmjöl 30 g pekanhnetur 20 g sólblómafræ 3/4 tsk kanill 1/4 tsk sjávarsalt 100 g hunang 1 1/2 msk ólífuolía 1 tsk vatn rúsínur eftir smekk Hitið ofninn í 120 C. Setjið þurrefnin saman í skál og blandið saman. Blandið hunanginu saman við olíuna og vatnið og hellið saman við þurrefnin, blandið vel saman. Setjið á pappírsklædda ofnplötu og bakið í klukkustund. hrærið í 20 mínútna fresti. Ég set rúsínurnar ekki með í ofninn bæti þeim við eftirá. Uppskrift sett inn: 12. May 2016 |