|
STÖKKIR KJÚKLINGABITAR Í KORNFLEXMULNINGI
Marinering 1 dós sýrður rjómi2 tsk hunangs Dijon sinnep ½ tsk hvítlauksduft salt og pipar 4 kjúklingabringur 5 bollar kornfleks (1 bolli=2 dl) 2 tsk hvítlauksduft 2 tsk fersk steinselja1 tsk tímíansalt og pipar 1 msk ólífuolía Skerið kjúklingabringurnar eða kjúklingakjötið í álíka stóra bita. Skolið kjötið og þerrið mjög vel. Hitið ofninn í 200°C. Blandið sýrða rjómanum, hunangs sinnepi, hvítlauksdufti, salti og pipar saman í skál. Setjið kjúklingabitana út í marineringuna og leyfið honum að marinerast í nokkrar mínútur (því lengur því betri verður kjúklingurinn) Setjið kornflex, hvítlauksduft, steinselju, tímían, salt, pipar og ólífuolíu í matvinnsluvél. Veltið kjúklingabitunum upp úr kornflexinu og þekjið hvern bita mjög vel. Leggið bitana á pappírsklædda ofnplötu og bakið við 200°C í 25 – 30 mínútur. Þegar eldunartíminn er hálfnaður snúið þið bitunum við og dreifið smá olíu yfir bitana. Berið fram með hunangssósu, kartöflubátum og fersku grænmeti t.d. agúrku og gulrætur. Uppskrift sett inn: 16. Oct 2015 |