Brún og gómsæt sósa
300 ml rjómi eða matreiðslurjómi
1 dl kjúklingasoð
3 msk sýrður rjómi
1 tsk góð berjasulta
salt og pipar
1 msk smátt söxuð steinselja
sósuþykkjari, magn eftir smekk
Blandið öllum hráefnum saman í pott og náið upp suðu. Leyfið sósunni að malla í nokkrar mínútur.

Kryddið til með salti og pipar. Gott er að saxa niður ferska steinselju og sáldra yfir sósuna rétt í lokin.

Uppskrift sett inn: 16. Oct 2015

Prentútgáfa