Besta súkkulaðikakan með klassísku smjörkremi
Súkkulaðibotnar
3 bollar Kornax hveiti
2 bollar sykur
3 egg
2 bollar AB mjólk
1 bolli bragðlítil olía (ekki nota ólífuolíu)
5-6 msk. Gott kakó
2 tsk. Lyftiduft
1 tsk. Matarsódi
2 tsk. Vanillu exctract eða vanillusykur.
Hitið ofninn í 180°C (blástur). Blandið öllum hráefnum saman og hrærið í nokkrar mínútur eða þar til deigið er orðið silkimjúkt. Smyrjið tvö lausbotna form og skiptið deiginu niður í formin. Bakið við 180°C í 20 – 25 mínútur. Tíminn fer auðvitað eftir ofnum, eins og alltaf. Gott er að athuga baksturinn með því að stinga prjóni í kökuna, prjóninn á að koma hreinn út og þá er kakan klár. Leyfið botnunum að kólna alveg áður en þið setjið á þá krem.

Klassískt og ómótstæðilegt smjörkrem.
370 g. Flórsykur
220 g. Smjör
4 msk. Gott kakó
2 msk. Mjólk eða rjómi
2 tsk. Vanilla extract eða vanillusykur
1 msk. Uppáhellt kaffi

Aðferð: Þeytið saman smjör við stofuhita og flórsykur í svolitla stund, því næst fer annað hráefni og þeytið vel í nokkrar mínútur. Kremið verður silkimjúkt ef þið þeytið það í 4 – 5 mínútur. Því lengur því betra verður kremið,


Uppskrift sett inn: 13. Oct 2015

Prentútgáfa