|
Mjúkar Hnetusmjörs-smákökur
1/2 bolli smjör 1/2 bolli hnetusmjör (eða 3/4 bolli salthnetur) 1/2 bolli sykur 3/4 bolli púðursykur 1 egg 1 1/4 bolli hveiti 1/2 tsk. lyftiduft 3/4 tsk. matarsóti (Ath. hér er átt við lítinn bolla) Útbúa hnetusmjör úr salthnetum: 1. Mest saltið skolað af salthnetunum, setja í sikti undir rennandi vatn eða hrista þær í lokuðu íláti með vatni í. (Einfaldara væri að nota ósaltaðar hnetur, en þær eru einhvurra hluta vegna mun dýrari). 2. Hneturnar hakkaðar í matvinnslugræju þar til þær breytast í mauk. Deig: 1. Hræra saman hnetusmjöri, smjöri, sykur og eggi. 2. Bætið út í matarsóta, lyftidufti og hveiti. 3. Kælið í ísskáp í nokkrar klst. eða þar til vel kalt. Bökun: 1. Rúllið deigið í 3cm kúlur og raðið á smurða bökunarplötu. 2. Fletjið kúlurnar með gaffal (dýfið gaffal í hveiti eða flórsykur til að hann festist ekki við deigið). 3. Valfrjálst: Setja smá súkkulaðibita ofan á hverja köku. 3. Bakið í 10-15 mínútur við 190°C Uppskrift sett inn: 26. Feb 2012 |